Myndahornið

  • Myndir vikunnar
  • Myndir vikunnar
  • Myndir vikunnar
  • Myndir vikunnar
  • Myndir vikunnar
Fréttir
Varmhlíðingar sigra í frjálsum íþróttum
Þriðjudagur, 21. febrúar 2012 12:03
Nemendur Varmahlíðarskóla í 6. – 10. bekk öttu kappi við aðra grunnskólanemendur í Skagafirði á grunnskólamóti UMSS í frjálsum íþróttum sem haldið var á Sauðárkróki fimmtudaginn 16. febrúar s.l. 54 nemendur skólans tóku þátt í mótinu og voru skráðir í 209 greinar en keppt var í 7 greinum í hverjum aldursflokki. Nemendur stóðu sig mjög vel og unnu til margra verðlauna. Í lok móts stóðu þeir uppi með stigabikar mótsins með 180 stig samtals. Óskum við nemendum okkar til hamingju með þennan glæsilega árangur.
 
Vetrarfrí - lokun í íþróttahúsinu
Vetrarfrí Varmahlíðarskóla er frá 22. - 24. febrúar. Skólastarf hefst svo aftur mánudaginn 27. febrúar. Vinsamlegast athugið að Íþróttahús og sundlaug skólans verða lokuð fimmtudag og föstudag,  23. og 24. febrúar.
 
Kapla-kubbar
Þriðjudagur, 14. febrúar 2012 22:24
kapla_09Á  dögunum gaf foreldrafélag skólans okkur kassa með svokölluðum kapla-kubbum. Krakkarnir hafa mjög gaman af að byggja úr þeim, jafnt þeir  eldri sem og þeir yngri. Hér má sjá nemendur 1., 2. og 3. bekkjar skemmta sér við margvíslega hönnum. Þökkum við kærlega fyrir þessa góðu gjöf.
 
Fræðslufundur um framhaldsskólakerfið
Sunnudagur, 12. febrúar 2012 21:11

Síðastliðinn miðvikudag var haldinn kynningarfundur í Varmahlíðarskóla um framhaldsskólakerfið. Fundurinn var sérstaklega ætlaður nemendum 10. bekkjar og foreldrum þeirra og sá Margrét Björk Arnardóttir, náms- og starfsráðgjafi, um kynninguna. Góð mæting var á fundinn sem eðlilegt er þar sem 10. bekkingar standa frammi fyrir stórri ákvörðun þegar kemur að því að velja framhaldsnám. Undanfarið hefur lífsleiknin verið helguð náms- og starfsfræðslu þar sem nemendur hafa kynnt sér mismunandi nám og störf og velt fyrir sér markmiðum sínum og gildum.

Þriðjudaginn 21. febrúar n.k. gefst 10. bekkingum kostur á að heimsækja Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra og fá að fylgja eldri nemanda í 4 kennslustundir. Þetta er gert til að kynna þeim enn frekar lífið sem framhaldsskólanemar.

Margir framhaldsskólar bjóða upp á opin hús þar sem starfsemi og sérstaða hvers skóla er kynnt. Sendur verður tölvupóstur á foreldra þar sem dagsetningar opinna húsa eru kynntar. Allar nánari upplýsingar varðandi framhaldsskólakerfið og opin hús framhaldsskólanna má nálgast hjá Margréti. Best er að senda póst á netfang: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Glærukynningu miðvikudagsins má finna hér.

 
Breyttur opnunartími
Mánudagur, 06. febrúar 2012 15:30
Frá og með 13. febrúar breytist opnunartími Sundlaugarinnar í Varmahlíð. Sjá nánar.
 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Síða 1 af 22

Designed by:
SiteGround web hosting Joomla Templates
Varmahlíðarskóli, Gert í Joomla! með sniðmáti frá SiteGround