40 ára afmæli - opið hús

Í tilefni af 40 ára afmæli Varmahlíðarskóla á núverandi skólaári ætlum við að gera okkur glaðan dag og fagna þessum tímamótum. Það verður opið hús í skólanum fimmtudaginn 26. maí frá kl. 15:00 til 18:00. Kl. 16:30 er hátíðarsamkoma í íþróttamiðstöð og danssýning nemenda. Á opnu húsi verða verk nemenda sýnd og afrakstur þemadaga. Boðið verður uppá kaffi og meðlæti.

Allir velkomnir, gamlir nemendur, velunnarar skólans og aðrir.

Nemendur og starfsfólk Varmahlíðarskóla.