Árshátíð 7.-10. bekkjar - Hársprey!

Unglingar í 7.-10. bekk í Varmahlíðarskóla sýna söngleikinn Hársprey í Miðgarði, fimmtudaginn 11. janúar kl. 17:00 og föstudaginn 12. janúar kl. 20:00. Allir velkomnir og athugið, aðeins þessar tvær sýningar.
Eftir sýningu fimmtudagsins er boðið upp á veislukaffi í Varmahlíðarskóla eins og hefð hefur verið fyrir en að lokinni sýningu föstudagsins verður unglingaball fyrir 7.-10. bekk í Miðgarði þar sem meðlimir úr Hljómsveit kvöldsins sjá um að halda uppi fjörinu.

Á föstudegi verður frístundastrætó, skráning í Nóra https://skagafjordur.felog.is/