Yngstu nemendur í heimsókn á leikskólum

Miðvikudaginn 15.janúar fóru nemendur í 1.-.3. bekk í leikskólaheimsókn á Reyniland og Birkilund. Á leiðinni mættu nemendum snjóskaflar, vörubílar, snjóruðningstæki og ýmislegt fleira skemmtilegt. Farið var varlega og gekk ferðin að óskum.
Allir léku sér saman og eignuðust margir nýja vini og fóru glöð og sæl aftur í skólann.