Niðurstöður úr einelstiskönnun Olweusar

Niðurstöður eineltiskönnunar Olweusar voru kynntar fyrir starfsfólki og nemendum í 5.-10. bekk í síðustu viku en könnunin var lögð fyrir nemendur í 5.-10. bekk í nóvember 2016. Niðurstöðurnar eru heldur betri en í fyrra og mælist Varmahliðarskóli nú í takt við landsmeðaltal. Sjá nánar: Niðurstöður árið 2016.

Í Varmahlíðarskóla hefur verið unnið samkvæmt áætlun Olweusar gegn einelti og annarri andfélagslegri hegðun síðan hún var fyrst tekin upp á Íslandi haustið 2002. Áfram verður unnið undir merkjum Olweusar og samkvæmt því gegna umsjónarkennarar lykilhlutverki í baráttunni gegn einelti. Ef grunur um einelti kemur upp er mikilvægt að láta umsjónarkennara vita.