Páskabingó!

N.k. fimmtudag, 4. apríl kl. 17:00 heldur 10. bekkur páskabingó í setustofu skólans. Bingóið er til styrktar ferðasjóði nemenda 10. bekkjar, en þau stefna til Danmerkur nú í maí.  Vinningar eru fjölbreyttir að vanda.  10. bekkingar hvetja fólk til að mæta tímanlega því bingóin eru oftar en ekki vel sótt. Engin posi er á staðnum en sjoppa með slikkerí verður opin.