Skólaslit Varmahlíðarskóla

Skólaslit Varmahlíðarskóla fara fram við hátíðlega athöfn í Miðgarði, miðvikudaginn 29. maí kl. 17:00. Nemendur 1.-9. bekkjar fá afhent vitnisburðarblöð, útskriftarnemar taka við útskriftarskírteinum og veittar verða viðurkenningar. Við syngjum skólasönginn og bjóðum að athöfn lokinni til kaffisamsætis í mötuneyti skólans. Allir velunnarar skólans eru hjartanlega velkomnir.