Styrkur frá Forriturum framtíðarinnar

Nýverið fór fram úthlutun styrkja frá Forriturum framtíðarinnar og hlaut Varmahlíðarskóli veglegan styrk. Tilgangur sjóðsins, Forritarar framtíðarinnar, er að efla tækni- og forritunarkennslu í grunn- og framhaldsskólum landsins. Sjóðnum bárust alls 32 umsóknir að þessu sinni, flestar frá grunnskólum. Styrkir sjóðsins eru í formi tölvubúnaðar og fjárstyrks til þjálfunar kennara til að búa þá betur undir forritunarkennslu fyrir nemendur.

Þeir ellefu skólar sem hlutu styrk úr sjóðnum í þessari úthlutun, samtals um 6,5 milljónir króna, eru: Varmahlíðarskóli, Grunnskóli Borgarfjarðar eystri, Kársnesskóli, Höfðaskóli, Víkurskóli, Bíldudalsskóli, Vatnsendaskóli, Álfhólsskóli, Kópavogsskóli, Grunnskólinn í Hveragerði og Grunnskólinn í Þorlákshöfn.   

Sjóðurinn var stofnaður árið 2014 og hefur síðan þá úthlutað styrkjum fyrir hátt í 40 milljónir króna til skóla landsins. Á árinu 2017 bættust öflugir bakhjarlar við Forritara framtíðarinnar en þeir eru fyrirtækin Marel og Advania. Aðrir bakhjarlar sjóðsins eru Reiknistofa bankanna, Íslandsbanki, Landsbankinn, CCP, Icelandair, Össur, Cyan og KOM.

Þess má til gamans geta að árið 2015 fengu Árskóli og Grunnskólinn austan Vatna styrk úr sjóðnum.

„Þjóðir sem best standa hvað tækni varðar búa við ákveðið for­skot. For­rit­un eða inn­sýn í for­rit­un er nokkuð sem nýt­ist ung­menn­um til framtíðar, ekki ósvipað og fólk býr að því að hafa fengið kennslu í er­lend­um tungu­mál­um, landa­fræði og öðrum náms­grein­um,“ seg­ir Sig­fríður Sig­urðardótt­ir, formaður stjórn­ar For­rit­ara framtíðar­inn­ar, í til­kynn­ingu.