Vinaliðaverkefnið hlýtur hvatningarverðlaun

Vinaliðaverkefnið fékk í vikunni hvatningarverðlaun mennta- og menningarmálaráðuneytisins sem afhent voru 8. nóvember 2018 á degi gegn einelti. Í Varmahlíðarskóla starfa Vinaliðar og stuðla með sinni þátttöku að aukinni virkni nemenda í frímínútum, góðum samskiptum og jákvæðum skólabrag. 

Frekari upplýsingar frá afhendingu hvatningarverðlaunanna má sjá hér á heimasíðu Menntamálastofnunar.