Varmahlíðarskóli
Vikupóstur 23. október
Komið öll sæl og blessuð
Vonandi áttu allir náðugt og nærandi haustfrí. Þessi vika gekk hratt yfir og óðar kominn föstudagur. Ýmislegt hefur nú samt verið í gangi hjá okkur þrátt fyrir stutta viku.
Bleiki dagurinn 2026
Það ríkti mikil gleði og bleikur litur í öllum hornum skólans þegar við fögnuðum Bleika deginum 2026. Bleiki dagurinn er árlegur og mikilvægur viðburður þar sem við sýnum samstöðu í baráttunni gegn krabbameini, styðjum við þá sem eiga um sárt að binda og söfnum áheitum til góðs málefnis.
Allir nemendur og starfsfólk skólans mættu í einhverju bleiku og sýndu lit. Eftir löngu frímínúturnar tókum við okkur til, nemendur og starfsfólk leik, - grunn, - og tónlistarskólans, fórum út og mynduðum risastóra bleika slaufu saman! Það var magnað sjónarspil og frábær samvinna.
Hátíðarhöldunum lauk þó ekki þar því eftir hádegið héldum við í Miðgarð þar sem tónlistarmaðurinn Páll Óskar mætti á svæðið og tók lagið! Var það gjörningur í tilefni af Skúnaskralli sem er nú í gangi. Húsið fylltist af dansi, söng og ótrúlegri orku sem smitaði frá sér til allra viðstaddra. Það skemmdi nú ekki fyrir að allir sem vildu gátu fengið sjálfu með Palla.
Leikfangadagur
Skúnaskrall í Varmahlíðarskóla
Skúnaskrall - Varmahlíðarskóla
Þórunn Rakel verður með ritsmiðju á miðstigi fyrir hádegi miðvikudaginn 28. okt
Felix Bergsson verður hjá okkur eftir hádegi sama dag og kynnir bók sína fyrir 4-7. bekk.
Hlökkum mjög til að fá þau í heimsókn ;o)
Svakalega lestrarkeppnin - úrslit
Úrslit úr Svakalegu lestrarkeppninni voru tilkynnt núna um hálfellefuleytið. Tæplega 22.400 börn í 108 skólum tóku þátt og lásu í næstum 12,4 milljón mínútur á þremur vikum.
Það er með mikilli gleði tilkynnt að Varmahlíðarskóli lenti í 3.sæti!!
Nemendur lásu að meðaltali 1111 mínútur á nemanda á þessum þremur vikum. Vel gert!
Páll Óskar heimsækir Varmahlíðarskóla
Miðvikudaginn 21. október heimsækir Páll Óskar Varmahlíðarskóla. Við ætlum að syngja saman í Miðgarði kl. 13:00-14:00. Meðal annars ætlum við að sygngja lagið Eitt af blómunum en innihald textans tengist Baráttudegi gegn einelti. Heimsókn Páls Óskars er liður í Skúnaskralli á vegum barnamenningarhátíðar SSNV. Nemendur og starfsfólk skólans eru búin að æfa lagið og er mikil tilhlökkun að syngja með poppgoðinu. Sama dag er bleikur dagur í skólanum og við ætlum að bæta við smá glimmeri.
Skúnaskrall
Skúnaskrall – Öll saman, barnamenningarhátíð Norðurlands vestra, hefst með pompi og prakt 21. október nk. og lýkur 4. nóvember. Hátíðin er samstarfsverkefni allra sveitarfélaganna í landshlutanum og eitt af áhersluverkefnum SSNV. Gaman er að segja frá því að hún hlaut veglegan styrk úr Barnamenningarsjóði og nýtur auk þess stuðnings Samfélagssjóðs Landsvirkjunar.
Meðal viðburða má nefna:
Páll Óskar heimsækir alla grunnskóla landshlutans og syngur fyrir nemendur.
Hrekkjavökuball á Hofsósi fyrir unglingastig allra sex grunnskólanna, í umsjón félagsmiðstöðvarinnar Friðar. Þar koma fram Spritezeroclan og Úlfur Úlfur.
Hrekkjavökuball á Blönduósi fyrir miðstig. Ballið, sem er í umsjón félagsmiðstöðvarinnar Skjólsins, fær DJ Sakka og Partývélina til að halda uppi stuðinu.
Stuttmyndir frá UngRIFF í leik- og grunnskólum.
Umskiptingar sýna leikritið um Fóu og Fóu feykirófu.
Einnig verða í boði bæði dans- og leiklistarnámskeið, ritunarsmiðjur, myndlistarsýningar og námskeið í Fab Lab. Þá verður mikið um að vera á bókasöfnum svæðisins svo nokkur dæmi séu tekin.
Nánari upplýsingar og dagskrá munu birtast á skunaskrall.is. Vakin er athygli á því að skráning er nauðsynleg á suma viðburðina vegna fjöldatakmarkana.
Átta Helgur!
Nú á haustdögum urðu ýmsar hræringar í starfsmannahóp Varmahlíðarskóla og ekkert óeðlilegt við þær breytingar. Þó má telja sérstakt að um þessar mundir finnist átta Helgur í hópnum sem telur 34 starfsmenn! Þessar tölur mætti nota í stærðfræði handa nemendum í prósentureikningi
Vikupóstur 9. október
Komið öll sæl og blessuð
Nokkrar dagsetningar framundan:
9.-12. okt.  fundarbókanir á Mentor
14. okt. leikfangadagur í skólanum og LAN+gistinótt hjá Húsi Frítímans (unglingastig)
15.-16.       vetrarfrí
19. okt.      starfsdagur  - Frístund lokuð
20. okt.      samráðsdagur - Frístund lokuð
Næsta vika er skert vegna þess að framundan er vetrarfrí 15.-16. október. Eftir þá helgi verður einn starfsdagur og þá er frí hjá nemendum.
Þriðjudaginn 20. október verða síðan foreldraviðtöl eða Samráðsdagur eins og við köllum daginn, þá funda foreldrar og börn með umsjónarkennara til að taka höndum saman um velferð og framgang nemandans í lífi og starfi. Nemendur 9. bekkjar safna sér fyrir skólaferðalagi og verða með vöfflusölu í setustofunni, við hvetjum ykkur til að styrkja þau. Bókasafnið verður einnig opið þann dag.
Við hvetjum ykkur til að ræða við börnin ykkar um skólann og mæta örlítið undirbúin til leiks. Búið er að opna fyrir fundarbókanir á Mentor og það lokast fyrir bókanir á miðnætti mánudaginn 12 október.
Aðrir kennarar, stuðningshetjurnar okkar og síðast en ekki síst skólaliðar starfa í skólanum þennan dag ef einhver þarf að ræða málin. Skrifstofan er alltaf opin hjá skólastjórnendum, ritara og húsverði.
Miðvikudaginn 21. okt er síðan venjulegur skóladagur samkvæmt stundaskrá og leikfangadagur.
Græn vika er rétt yfirstaðin þar sem var farið yfir flokkunarmál, matarsóun, náttúruvernd og margt, margt fleira. Skemmtileg verkefni í gangi núna en þetta er vinna sem þarf alltaf að taka fyrir reglulega í einhverri mynd .
Næstu viku tökum við vel á móti kennaranema sem kemur í heimsókn til okkur á unglingastigið. Við erum gríðarlega stolt og ánægð að fá til okkar kennaranema.
Síðastliðna viku fengum við heimsókn frá Háskólanum á Akureyri. Verið var að skoða starf okkar í Varmahlíðarskóla í tengslum við kennsluaðferðina Byrjendalæsi á yngsta stigi og var úttektaraðili gríðarlega ánægð með jákvæðan skólaanda, áhugasama nemendur og skemmtilega nálgun kennara á viðfangsefnum.
Kær kveðja,
Skólastjórnendur.
Íslandsmeistarar í pílu
Nemendur úr Varmahlíðarskóla, Birna Guðrún og Gerður Júlía, eru nýkrýndir Íslandsmeistarar í liðakeppni í pílu U18 í stúlknaflokki. Einnig vermdu Varmhlíðingar annað sætið, en það voru þær Þórdís og Emma. Stelpulið Pílukastfélagsins, Birna, Gerður, Emma og Þórdís enduðu jafnframt sem stigahæsta félagið í kvennaflokki. Innilegar hamingjuóskir til ykkar stelpur! Virkilega vel gert!
Sjá frétt Pílukastfélagsins;
Í stúlknaflokki átti PKS eftirminnilega helgi. Birna og Gerður urðu Íslandsmeistarar í liðakeppni U18 kvenna eftir sigur á Emmu og Þórdísi í afar spennandi og jöfnum úrslitaleik. Það verður vart mikið betra fyrir félagið en að eiga bæði liðin í úrslitaleiknum.
Emma og Þórdís eiga einnig sérstakt hrós skilið. Þetta var fyrsta stóra mótið þeirra beggja og þær sýndu miklar framfarir eftir því sem leið á helgina. Það var greinilegt að sjálfstraustið og leikurinn óx með hverjum leik.
Vikupóstur 2. október
Mánudaginn síðasta lagði 7. b. upp í ferðalag ásamt Eyrúnu Sævarsdóttur umsjónarkennara. Ferðinni var heitið að Reykjum í Hrútafirði þar sem þau eyddu vikunni í þaulskipulagðri dagskrá þar til á fimmtudag þegar komið var að heimferð. Nemendur voru bæði sjálfum sér og okkur til sóma.
Reiknað er með að það verði félagsmál á fimmtudaginn 8. október.
Heimsókn í MA og VMA
Nemendur í 9. og 10. bekk fóru í vel heppnaða kynnisferð á opið hús í MA og VMA síðastliðinn miðvikudag. Kynningarnar hjá skólunum voru afar vel skipulagðar og var tekið virkilega vel á móti nemendum og fylgdarliði á báðum stöðum. Krakkarnir fengu góða innsýn í það fjölbreytta nám og félagslíf sem skólarnir tveir hafa upp á að bjóða. Einnig fengu krakkarnir kynningu á heimavistinni.
Vikupóstur 25. september
Vikurnar líða á ógnarhraða og brátt mun september líða undir lok og október taka við.
Eftir helgina fara nemendur í 7. bekk að Reykjum í Hrútafirði og verða þar vikuna í skólabúðum. Þetta er gríðarlega gefandi og skemmtileg upplifun.
Á miðvikudaginn 30. sept. munu 9-10. bekkur fara í heimsókn til Akureyrar að skoða MA og VMA og heimavistina. Helga Rós, Unnur og Nína ætla að fara með.
Farið verður af stað frá Varmahlíðarskóla eftir morgunmat klukkan 9:00 og komið klukkan 16:00 +. Þurfum við að fá foreldra til að ná í krakkana.
Málæði er ennþá í gangi og mjög skemmtilegt að fylgjast með krökkunum vinna hörðum höndum að verkefnum sínum.
Góðar líkur eru á því að við munum skipta um námsumsjónarkerfi á næstunni. Færa okkur úr Mentor og yfir í Námfús. Þetta gæti valdið því að námsmat virðist ekki vera í gangi en við fullvissum ykkur um að það er alls kyns námsmat í gangi og kennarar skrá námsþróun nemenda með faglegum hætti. Kynnum þetta þegar nær dregur.
Sumarlesturinn
Ólympíuhlaup ÍSÍ
Vikupóstur 18. september
Komið öll sæl og blessuð
Í næstu viku hefjast inniíþróttir og því mikilvægt að nemendur séu með innanhússkó og íþróttaföt eftir helgina.
Þessa vikuna hófu nemendur þátttöku í svakalegu lestrarkeppninni og hún fer vel á stað. Um að gera að skrá allt efni sem farið er yfir heima, jafnvel Fjárbókina :o)
Fyrsti nemendaráðsfundurinn var haldin með Þóru Emelíu sem mun sjá um Félagsmálin í vetur, mikill spenningur að koma starfinu af stað og mun það verða auglýst nánar fljótlega. Nemendaráð Varmahlíðarskóla er með Instagramreikning sem heitir nemovarmo.
Unglingastigið er að taka þátt í verkefni sem heitir Málæði og fyrsta verk er að semja texta við lag sem Bragi Valdimar hefur samið. Þau hlusta á lagið og laglínuna og semja texta í hópum. Þetta er áhugavert og skemmtilegt verkefni og það verður gaman að sjá afraksturinn. Hér er tengill á þetta verkefni. Þar má lesa nánar um þetta.
Við vorum himinlifandi yfir góða veðrinu sem við fengum til að hlaupa Ólympíuhlaup ÍSÍ í dag, föstudag. Allt gekk á besta veg og nemendur stóðu sig eins og hetjur, jafnt ungir sem eldri. Farið var í sund á eftir og svo enduðum við daginn með því að syngja saman.
9. og 10. bekk hefur verið boðið að koma í heimsókn í MA og VMA miðvikudaginn 30. sept næstkomandi. Nánara skipulag verður sent út síðar.
10. bekkur er að fara af stað í flöskusöfnun þannig að á næstunni gætu þau bankað uppá, en þau skipta svæðinu í kringum sig.
Sólarkveðjur
Gunna
Kosning nemendaráðs
Í vikunni fóru fram framboðsfundir og kosning í nemendaráð Varmahlíðarskóla fyrir núverandi skólaár. Á framboðsræðum mátti sjá að nemendur voru vel undirbúnir, ræðurnar málefnalegar og framkoma til fyrirmyndar. Niðurstaða kosninga er svohljóðandi: Jón Karl Brynjarsson og Bergrún Lauga Þórarinsdóttir úr 10.bekk eru formenn og Ingibjörg Agnarsdóttir og Edda Björg Einarsdóttir varamenn, Hrólfur Leví Traustason aðalmaður og Ásrún Fjóla Stefánsdóttir varamaður í 9.bekk, Emma Mjöll Jóhannesdóttir aðalmaður og Alina Leblanc Gurung í 8.bekk, Baldvin Orri Dagsson aðalmaður og Pétur Steinn Jónsson varamaður í 7. bekk, María Sjöfn Jónsdóttir aðalmaður og Ólafur Árni Stefánsson varamaður í 6. bekk. Frábært að fá svona góðar fyrirmyndir sem hafa það aðalmarkmið að vinna í þágu nemenda varðandi félagsstarf skólans.
Dagur íslenskrar náttúru
Í dag, 16. september, er dagur íslenskrar náttúru. Við höldum upp á daginn til að njóta náttúrunnar, kynnast henni betur og minna okkur á mikilvægi þess að vernda hana.
Dagsetningin var valin til heiðurs Ómari Ragnarssyni, sem á afmæli 16. september. Ómar hefur um árabil frætt landsmenn um íslenska náttúru og verið ötull talsmaður náttúruverndar.
Náttúruna má finna rétt við skólann: í gróðrinum, fuglunum, steinunum og veðrinu sem breytist frá degi til dags. Við hvetjum nemendur og fjölskyldur þeirra til að fara út í dag, líta í kringum sig og velta fyrir sér hvað þau geta gert til að ganga vel um náttúruna.
Vikupóstur 11. september
Komið öll sæl og blessuð!
Dagur læsis
Í dag var dagur læsis og af því tilefni var ýmislegt skemmtilegt gert í skólanum.
Nemendur á yngsta stigi komu með uppáhaldsbókina sína að heiman og nemendur í 2.–4. bekk skrifuðu um sína bók. Þá heimsóttu nemendur í 7. bekk yngstu krakkana í 1. bekk og lásu fyrir þau vel valdar barnabækur, auk þess sem margt fleira var brasað.
Dagur læsis er dýrmæt áminning um töfra og mikilvægi lestrar í lífi okkar allra. Lestur er ekki bara undirstaða alls náms, heldur líka lykill að ævintýrum, nýjum heimum og dýpri skilningi á okkur sjálfum og öðrum.
Með því að efla læsi hjá börnum og ungmennum færum við þeim öflugasta verkfærið til að tjá sig, hugsa gagnrýnið og móta eigin framtíð. Þegar við lesum saman eflum við ekki aðeins orðaforða og ímyndunarafl, heldur sköpum við líka hlýjar samverustundir sem reynast dýrmætar til frambúðar.