Frístund opin

Starfsemi frístundar hefst 18. ágúst, viku fyrir skólasetningu. Opnunartími þá daga (18.-24. ágúst), er frá kl. 8:00 til 16:30. Það þarf að skrá vistun sérstaklega með því að senda tölvupóst á fristund@vhls.is og tilgreina daga og tímasetningar.

Frístund er heilsdagsvistun við Varmahlíðarskóla, fyrir nemendur í 1.-4. bekk. Lögð er áhersla á hlýlegt og öruggt umhverfi, góð samskipti, frjálsan og skapandi leik þar sem börnin velja sjálf viðfangsefni.