Skólasetning og fyrsti skóladagur Varmahlíðarskóla verður þriðjudaginn 25. ágúst kl. 9:00. Skólabílar aka. Nemendur koma saman á skólastigum, yngsta stig, miðstig og unglingastig, þar sem skóli verður settur og síðan tekur við skóladagur til kl. 12:00. Morgunhressing verður um kl. 10:00 (ekki hádegismatur á skólasetningardegi).
Foreldrum er frjálst að fylgja sínum börnum ef þeir kjósa en við minnum á ráðstafanir v.covid (2 metrar og sótthreinsun).
Við hlökkum til að sjá ykkur og til samstarfsins á komandi skólaári.
Heimilisfang: Birkimel 2 | 560 Varmahlíð Sími á skrifstofu: 455 6020 Netfang: varmahlidarskoli@varmahlidarskoli.is Sími í Frístund: 626 4424 / netfang: fristund@vhls.is |
Skrifstofa skólans er opin |