|
Þegar nemendur hefja skólagöngu er að ýmsu að hyggja. Eitt og annað smálegt breytist. Hið fyrsta er að gert er ráð fyrir að nemendur komi með skólabíl, ef þeir búa lengra frá skólanum en í Varmahlíð. Bílarnir koma að skólanum laust eftir klukkan átta að morgni og ganga nemendur þá inn í forstofu, ganga frá útifötum og skóm og ganga svo inn í skólann og bíða á tilteknu svæði þar til kennsla hefst. Gæsla að morgni, í frímínútum, og í hádegi er í höndum skólaliða og stuðningsfulltrúa. Umsjónarkennari sér um flesta tíma hjá hópnum en þó eru einnig aðrir tímar á dagskrá, eins og íþróttir og sund og þarf því að taka sérstaka tösku með þegar slíkt er á dagskrá. Einnig eru tímar í list- og verkgreinum sem alla jafna eru að minnsta kosti að hluta til í umsjá annarra. Mötuneyti er rekið í skólanum. Máltíðir eru gjaldfrjálsar skv. samningi ríkis og sveitarfélaga, en þó er gert ráð fyrir að foreldrar skrái börn sín í mötuneyti, slík skráning er alla jafna send út í ágúst. Þar er boðið upp á morgunmat og hádegisverð. Heimakstur er einu sinni á dag, eða þegar elstu nemendur skólans hafa lokið sínum skóladegi. Hinir yngri hafa færri tíma á sinni stundaskrá en boðið er upp á æfingar í samstarfi við íþróttafélagið Smára tvo daga í viku og geta nemendur svo farið heim með skólabíl eftir þær æfingar. Í framhaldi af skóladegi er hægt að skrá nemendur í Frístund, en þar er boðið upp á vistun fyrir nemendur frá skólalokum til kl. 16:15 alla virka daga, sem jafnframt eru skóladagar. Þar er margs konar dagskrá í boði og er skipulögð með hliðsjón af fjölda barna og árstíma. Á starfs- og viðtalsdögum er opnunartími frá kl. 8-16. Lokað er í jóla- og páskafríi, sem og haust- og vetrarfríi og á fræðsludegi Skagafjarðar sem haldinn er í ágúst ár hvert. Á svonefndum skertum dögum, eða þegar skóladagar eru styttri en ella þarf að skrá nemendur sérstaklega. Nánar má lesa um Frístund hér: https://www.varmahlidarskoli.is/is/nemendur/felagsmal |
|
Heimilisfang: Birkimel 2 | 560 Varmahlíð Sími á skrifstofu: 455 6020 Netfang: varmahlidarskoli@varmahlidarskoli.is Sími í Frístund: 626 4424 / netfang: fristund@vhls.is |
Skrifstofa skólans er opin |