26.11.2013
„Kveiktu á kerti frekar en að sitja í myrkrinu“.
Varmahlíðarskóli er heilsueflandi grunnskóli og í vetur leggjum við áherslu á geðrækt. Auk fræðslu innanhúss er áætlað að fá fyrirlestra fyrir nemendur, aðstandendur og starfsfólk um geðræktarmál. Sérstök áhersla verður lögð á geðorðin 10 og fær hver umsjónarbekkur sitt geðorð til að kryfja og miðla þekkingu um. Geðveikt horn er að fæðast í setustofunni þar sem fræðsluefni verður sýnilegt og þar verður kassi sem má setja í nafnlausar fyrirspurnir og óskir um allt er viðkemur andlegu heilbrigði. Síðast en ekki síst er markmiðið að minnka fordóma um það að vera „geðveikur“ , vinna að forvörnum og fræða um hvernig og hvar er hægt að fá hjálp. Settur verður upp tengill á heimasíðu skólans um heilsueflandi grunnskóla og hvað skólinn okkar hefur gert til að standa undir merkjum.
Lesa meira
15.11.2013
Í dag var haldið upp á Dag íslenskrar tungu með fjölbreyttum skemmtiatriðum eins og sést á meðfylgjandi myndbandi.
Lesa meira
14.11.2013
Á morgun munu allir sem vettlingi geta valdið mæta í lopapeysum í skólann. Þar að auki verðum við með samkomu í setustofunni í tilefni af degi íslenskrar tungu á laugardaginn þann 16. nóvember. Þar munu nemendur úr 2. 4. 6. 8. og 10. bekkjum stíga á stokk með undirbúin atriði sem hæfa tilefni dagsins. Þá má nefna að á laugardaginn munu nemendur úr 7. bekk koma fram á skemmtun á Löngumýri sem Skagfirski kammerkórinn stendur fyrir. Dagskráin nefnist í tali og tónum og hefst kl. 16.
Lesa meira
13.11.2013
Hinn árlegi dagur gegn einelti var haldinn hátíðlegur með fjölbreyttum hætti.
Lesa meira
12.11.2013
Í dag 12. nóvember voru kynntar endurskoðaðar skólareglur og punktakerfi. Leitast var við að einfalda þær reglur sem fyrir voru og höfða meira til ábyrgðar nemenda. Um skólareglur og punktakerfi í heild sinni er hægt að skoða undir flipanum NEMENDUR.
Grunnreglurnar eru eftirfarandi:
1. Við mætum stundvíslega í allar kennslustundir. Forráðamenn tilkynna forföll tímanlega til skóla og skólabílstjóra.
2. Við berum virðingu fyrir sjálfum okkur og öðrum og sýnum jákvæðni í öllum samskiptum.
3. Við sýnum engum ofbeldi hvort sem er andlegt eða líkamlegt.
4. Við göngum snyrtilega um skólann og berum virðingu fyrir eigum hans og annarra.
5. Við komum í klæðnaði sem hentar veðurfari hverju sinni. Yfirhafnir og útiskór eru geymd í útifatageymslu
og ekki notuð innanhúss.
6. Við notum hvorki tóbak né vímuefni.
7. Við notum ekki farsíma/ vasatölvur (I phone, Mp 3 spilara, I-pad o.fl.) í kennslustundum nema með leyfi kennara.
Slíkt er skilið eftir á skólaborðum áður en farið er á salerni eða í styttri ferðir úr kennslustund.
8. Við sitjum öll til borðs í matsal skólans á matmálstímum og þar notum við ekki farsima/vasatölvur.
9. Við hlítum fyrirmælum kennara og annars starfsfólks.
10. Við gerum okkar besta í starfi og leik.
Lesa meira
12.11.2013
fimmtudaginn 7.nóvember var náttfata-ullarsokkafótboltakeppni milli bekkja í félagsmálum. Hart var barist og virkilega tekið á því í skemmtilegum fótbolta sem endaði með því að 8.bekkur bar sigur úr býtum.
Lesa meira
06.11.2013
Í gær afhentu nemendur 7. og 8. bekkjar fulltrúum krabbameinsfélags Skagafjarðar eina miljón króna sem þau söfnuðu í áheitum.
Lesa meira
06.11.2013
Fjórir nemendur kepptu fyrir hönd skólans í undankeppni sem haldin var í Húsi frítímans.
Lesa meira
01.11.2013
Næsta mánudag fer lestrarhestur nokkur af stað í langferð um Ísland.
Lesa meira
01.11.2013
Mikið var um hársprey, fléttur og farða í féló fimmtudaginn 24. október.
Lesa meira