26.12.2013
Þann 19. desember gengu litlu-jólin í garð í Varmahlíðarskóla. Dagskrá var með hefðbundnu sniði en jafnframt voru þó nokkrar nýjungar á boðsstólum.
Lesa meira
21.12.2013
Opnunartímar íþróttamiðstöðvarinnar í Varmahlíð yfir hátíðarnar verða sem hér segir:
Lesa meira
20.12.2013
Skrifstofa skólans er lokuð frá hádegi 20. desember til 3. janúar 2014. Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá mánudaginn 6. janúar.
Opnunartími sundlaugar um hátíðarnar:
20.des 9:00-14:00
21.des 10:00-15:00
23.des 10:00-15:00
26.des til 30.des 10:00-15:00
31.des og 1.jan lokað
2.jan 16:00-21:00
Lesa meira
18.12.2013
Í dag var afrakstur stuttmyndavalsins sýndur. Var öllum nemendum og starfsfólki boðið upp á 12 myndir af ýmsu tagi.
Lesa meira
15.12.2013
Í vetur hafa nemendur í leiklistavali æft jólaleikritið Kjóllinn hennar Grýlu.
Lesa meira
13.12.2013
Hin árlega piparkökukeppni heimilisvalsins var haldin í dag en hún hófst með sýningu á húsunum fyrr í dag og leynilegri kosningu.
Lesa meira
09.12.2013
Varmahlíðarskóli er þátttakandi í verkefninu Heilsueflandi grunnskóli. Á skólaárinu 2013 -2014 verður unnið sérstaklega með þáttinn geðrækt.
Lesa meira
04.12.2013
Á Degi íslenskrar tungu, 16. nóvember síðastliðinn, blés Kammerkór Skagafjarðar til dagskrár í tali og tónum tileinkaða Þorsteini Erlingssyni skáldi. Nemendur 7. bekkjar tóku þátt í dagskránni og sögðu frá ævi og störfum skáldsins auk þess sem þeir sungu með kórnum en líka ein og sér.
Lesa meira
29.11.2013
Það var álit flestra að aðventuföndurdagur foreldrafélagsins í gær hafi tekist afar vel.
Lesa meira
27.11.2013
Á morgun fimmtudag hvetjum við foreldra og/eða aðra aðstandendur að koma með börnum sínum og eiga skemmtilega stund með þeim í undirbúningi jólanna.
Margar skemmtilegar stöðvar verða í boði og geta þátttakendur valið það sem þeim hugnast best og farið á milli stöðva eins og þeir vilja. Tálgað jólasveina, jólakort, föndra úr pappír og filti, búa til jólaluktir úr krukkum, spila ýmis spil, dansa á jóladiskói, fara á kaffihús, hlusta á jólasögur, hlusta á nemendur tónlistaskólans spila og fara í jólamyndatöku! Allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
Nemendum er ekki skylt að mæta í þessa samverustund og verður heimkeyrsla strax eftir hádegismat fyrir þá sem ekki ætla að taka þátt. Við viljum endilega sjá sem flesta aðstandendur, allir velkomnir og nauðsynlegt er að einhver sé með hverju barni, sérstaklega í yngstu bekkjunum. Endilega látið ömmur og afa, frænkur og frænda og velviljara skólans vita, allir velkomnir að kíkja við. Skólabílar keyra ekki heim að lokinni aðventugleði og foreldrar þurfa að sjá um að koma börnum heim.
10.bekkur selur vöfflur og kakó á kaffihúsi í matsalnum til styrktar ferðasjóði sínum.
Lesa meira