10.bekkur í heimsókn á Löngumýri

Á Löngumýri fer fram starf fyrir eldri borgara héraðsins á þriðjudögum eftir hádegið. Síðastliðinn þriðjudag fóru nemendur í 10. bekk í heimsókn til þeirra þar sem þau kynntu árshátíðarleikritið sitt, sem er Hvar er draumurinn? og sungu nokkur lög úr því leikriti ásamt jólalögum. Undirleikarar voru Ingibjörg Agnarsdóttir og Jón Karl Brynjarsson nemendur úr 10. bekk. Skemmtileg stund þar sem kynslóðir koma saman.