06.11.2026
Boðið var upp á draugalestur í hrekkjavökumánuðinum fyrir yngsta - og miðstig. Nemendur fengu að velja sér eina fígúru, draug, leðurblöku, grasker eða könguló fyrir hverja bók sem þau lásu í október og hengdu upp hjá draugakastalanum. Eins og sést á myndinni voru nemendur afar duglegir að lesa og kastalinn varð fullur af allskonar hræðilegum verum.
Lesa meira
06.11.2026
Yngsta stig skólans (1.–4. bekkur) fékk heldur betur skemmtilega og skapandi heimsókn á dögunum þegar brúðuleikhúsið Stúdíó Handbendi mætti á svæðið með spennandi brúðugerðarsmiðju sem var í tilefni af Skúnaskralli - Barnamenningarhátíð Norðurlands vestra.
Í smiðjunni fengu nemendur tækifæri til að kynnast töfrum brúðulistarinnar undir leiðsögn fagaðila. Þeir fengu ekki aðeins að sjá hvernig brúðurnar lifna við, heldur spreyttu sig líka á því að hanna og búa til sínar eigin persónur. Hugmyndaflugið fékk að njóta sín og úr varð mikið dýrðarinnar brúðusafn og mikil gleði í hópnum.
Stúdíó Handbendi er margverðlaunað atvinnubrúðuleikhús sem staðsett er á Hvammstanga en ferðast um allt land (og út fyrir landsteinana) með sýningar og námskeið. Leikhúsið var stofnað árið 2016 af Gretu Clough og er þekkt fyrir vandaðar og ævintýralegar sýningar fyrir börn og fullorðna.
Handbendi hlaut meðal annars hina virtu viðurkenningu Eyrarrósina árið 2021 fyrir framúrskarandi menningarstarfsemi á landsbyggðinni, auk þess sem þau standa árlega fyrir alþjóðlegri brúðuleikhúshátíð á Norðurlandi vestra (Hvammstangi International Puppetry Festival).
Við þökkum Stúdíó Handbenda kærlega fyrir frábæra, lærdómsríka og skapandi heimsókn sem skilur eftir sig fullt af nýjum hugmyndum og skemmtilegum minningum hjá krökkunum.
Lesa meira
06.11.2026
Þann 8. nóvember ár hvert er baráttudagur gegn einelti. Dagurinn minnir okkur á mikilvægi þess að allir fái að tilheyra, njóti virðingar og finni til öryggis í skólanum sínum. Einelti getur birst með ýmsum hætti, meðal annars í særandi orðum, útilokun, stríðni, líkamlegu ofbeldi og neikvæðum samskiptum á netinu. Það er ekki alltaf sýnilegt og því skiptir máli að við séum vakandi fyrir líðan barnanna, hlustum og tökum frásagnir þeirra alvarlega.
Við getum öll lagt okkar af mörkum til að skapa jákvætt skólaumhverfi. Að bjóða öðrum með í leik, taka vel á móti skólafélaga og sýna umhyggju getur skipt miklu máli. Nemendur eru hvattir til að leita til fullorðins sem þeir treysta ef þeim líður illa eða verða vitni að einelti. Að segja frá er að biðja um hjálp – fyrir sjálfan sig eða aðra. Ábyrgðin á að bregðast við liggur hjá fullorðnum.
Gott samstarf heimila og skóla er mikilvægur þáttur í forvörnum gegn einelti. Við hvetjum foreldra og forsjáraðila til að ræða við börnin um vináttu, virðingu og samskipti, bæði í daglegu lífi og á netinu, og hafa samband við skólann ef áhyggjur vakna.
Í tilefni dagsins fóru nemendur og starfsfólk út og mynduðu tvo hringi norðan við skólann og sungu saman þrjú vinalög; Gull og perlur, Vinátta og Ég er vinur þinn og tóku allir vel undir.
Lesa meira
06.11.2026
Nemendur í 1.bekk hafa síðastliðna daga verið að vinna með bókina Sjóræningjarnir í næsta húsi í Byrjendalæsi. Afrakstur þeirrar vinnu var brúðuleikhús sem nemendur settu upp í dag og buðu skólahóp leikskólans á sýninguna. Nemendur voru búnir að búa til sjóræningjabrúður og brúðuleikhúsið sjálft, með aðstoð kennara. Mjög skemmtileg sýning.
Lesa meira
06.11.2026
Enn ein þrusu-skemmtileg vika búin. Margt hefur verið brallað nú sem áður, þrátt fyrir heilmikil flensuhrinu í samfélaginu.
Mánudag kom Handbendi á vegum Skúnaskrall með tröllabrúðugerð fyrir yngsta stig, þar var mikið fjör.
Miðvikudag var vel heppnað ball fyrir miðstigsnemendur á Blönduósi, var okkar fólk til sóma þar.
Fimmtudaginn voru félagsmál hjá unglingastigi. Lögreglan ætlaði að koma í heimsókn á öll stig, en það frestast þar til síðar.
Föstudag buðu nemendur í fyrsta bekk á leiksýningu, þau voru búin að gera leikbrúður, hin besta skemmtun
Í dag, föstudag er baráttudagur gegn einelti. Kennarar vinna jafnt og þétt með bekkjum yfir veturinn í verkefnum tengdum baráttu gegn einelti.
Misjafnt er milli hópa hvernig sú vinna fer fram t.d á tímabilum, í lotum, í þemaverkefnum eða jafnt og þétt á bekkjarfundum.
Þó svo að nú séum við ekki lengur Olweusarskóli, þá eru unnið heilmikið starf innanhúss og kennarar meðvitaðir um mikilvægi þessarar vinnu.
Vinna hefur verið hafin við að uppfæra stefnu Varmahlíðarskóla í eineltismálum. Á heimasíðu skólans má finna stefnu Varmahlíðarskóla
út frá Olweusi og mun það standa þar til ný stefna verður tilbúin og sett í loftið.
Minnum á mikilvægi þess að vera almennileg/ur við náungann - við vitum ekkert í gegnum hvað hann eða hún eru að ganga.
Allir þurfa á því að halda að þeim sé sýndur skilningur og tilvera þeirra sé staðfest.
Hjartans kveðjur
Lesa meira
29.10.2026
Í dag var hrekkjavakan haldin hátíðleg í skólanum. Ýmsar verur fóru á stjá; draugar, vampírur, varúlfur, nunnur, nornir, risaeðlur og ýmislegt fleira skemmtilegt. Við urðum meira að segja vitni að risaeðlu spila fótbolta. 10. bekkurinn bauð upp á draugahús sem vakti bæði mikla lukku og hræðslu hjá nemendum og starfsfólki. Búið var að gera skólann bæði draugalegan og hræðilegan og var gaman að sjá hversu duglegir bæði nemendur og starfsfólk voru að taka þátt í deginum. Sérstaklega vakti það mikla lukku skreytingarnar í matsalnum og þær urðu til þess að sumir misstu næstum því matarlystina. Myndirnar tala sínu máli.
Lesa meira
28.10.2026
Áfram höldum við með viðburði á Skrúnaskralli - Barnamenningarhátið Norðurlands vestra. Dagurinn byrjaði á því að rithöfundurinn Þórunn Rakel Gylfadóttir kom með ritsmiðju fyrir nemendur á miðstigi. Ritsmiðja er námskeið, vinnustofa eða samstarfsvettvangur þar sem fólk kemur saman til að æfa sig í skapandi skrifum, þróa texta og bæta ritfærni sína. Í ritsmiðjum er áherslan yfirleitt á hagnýtar æfingar og gagnrýna rýni frekar en hreina fyrirlestra. Þórunn Rakel hefur gefið út bækurnar Akam, ég og Annika sem hlaut Íslensku Bókmenntaverðlaunin 2021, Takk fyrir komuna; hótelsögur árið 2022, Mzungu árið 2025 og nú í ár gaf hún út, ásamt Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, út bókina Síðasti dagurinn. Bókin er sönn saga Matthildar sem lýsir reynslu sinni af því að flýja Grindavík þann 10. nóvember 2023 vegna náttúruhamfara og yfirvofandi eldgoss, séð frá sjónarhóli barns. Bókin hlaut Sólfaxa - íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026.
Eftir hádegið kom svo Felix Bergsson og hitti 4. -7. bekk. Hann kynnti nýju bókina sína Leynifélag í lífsháska! sem er hluti af bókaröðinni um Ævintýri Freyju og Frikka en fyrri bókin, Drottningin af Galapagos, kom út árið 2022 sem hljóðbók og á prenti árið 2025. Einnig tók Felix lagið fræga Fiskurinn hennar Stínu sem allir þekkja vel. Skapaðist frábær stemning þar sem bæði nemendur og starfsfólk tóku vel undir. Bækur beggja höfunda eru til á bókasafninu.
Lesa meira
21.10.2026
Það ríkti mikil gleði og bleikur litur í öllum hornum skólans þegar við fögnuðum Bleika deginum 2026. Bleiki dagurinn er árlegur og mikilvægur viðburður þar sem við sýnum samstöðu í baráttunni gegn krabbameini, styðjum við þá sem eiga um sárt að binda og söfnum áheitum til góðs málefnis.
Allir nemendur og starfsfólk skólans mættu í einhverju bleiku og sýndu lit. Eftir löngu frímínúturnar tókum við okkur til, nemendur og starfsfólk leik, - grunn, - og tónlistarskólans, fórum út og mynduðum risastóra bleika slaufu saman! Það var magnað sjónarspil og frábær samvinna.
Hátíðarhöldunum lauk þó ekki þar því eftir hádegið héldum við í Miðgarð þar sem tónlistarmaðurinn Páll Óskar mætti á svæðið og tók lagið! Var það gjörningur í tilefni af Skúnaskralli sem er nú í gangi. Húsið fylltist af dansi, söng og ótrúlegri orku sem smitaði frá sér til allra viðstaddra. Það skemmdi nú ekki fyrir að allir sem vildu gátu fengið sjálfu með Palla.
Þetta var algjörlega frábær dagur frá upphafi til enda, fullur af samstöðu, gleði, samveru og bleikum kærleika. En eins og segir í textanum Allt fyrir ástina; "Út með hatrið, inn með ástina".
Lesa meira