Komið sæl
Mánudaginn 2. nóv. verður Handbendi með tröllabrúðugerðasmiðju á yngsta stigi eftir morgunmat, þetta er hluti af Barnamenningarhátíðinni.
Fimmtudaginn 5. nóv kemur lögreglan í heimsókn fyrir hádegi og hittir stigin sameinuð hvert fyrir sig.
Föstudaginn 6. nóv er grænn dagur - Baráttudagur gegn einelti.
Í vikunni voru allskonar skemmtilegar uppákomur og voru okkar nemendur algjörlega til sóma í öllum tilfellum. Fimmtudagur var síðan helgaður Halloween þá mættu allir í búningum og ýmislegt grunsamlegt gaf að líta í matsalnum. Að auki voru nemendur 10. bekkjar með draugahús sem þau buðu bæði starfsfólki og nemendum að heimsækja. Í dag, föstudag bauð leikskólinn fyrsta bekk á brúðu-leiksýninguna um Fóu og Fóu Feykirófu. Leikkonurnar töluðu sérstaklega um hvað þetta voru kurteisir og frábærir gestir.
Takk fyrir uppbyggilega og skemmtilega viku
Sólarkveðjur