Baráttudagur gegn einelti

Þann 8. nóvember ár hvert er baráttudagur gegn einelti. Dagurinn minnir okkur á mikilvægi þess að allir fái að tilheyra, njóti virðingar og finni til öryggis í skólanum sínum. Einelti getur birst með ýmsum hætti, meðal annars í særandi orðum, útilokun, stríðni, líkamlegu ofbeldi og neikvæðum samskiptum á netinu. Það er ekki alltaf sýnilegt og því skiptir máli að við séum vakandi fyrir líðan barnanna, hlustum og tökum frásagnir þeirra alvarlega.
Við getum öll lagt okkar af mörkum til að skapa jákvætt skólaumhverfi. Að bjóða öðrum með í leik, taka vel á móti skólafélaga og sýna umhyggju getur skipt miklu máli. Nemendur eru hvattir til að leita til fullorðins sem þeir treysta ef þeim líður illa eða verða vitni að einelti.
Gott samstarf heimila og skóla er mikilvægur þáttur í forvörnum gegn einelti. Við hvetjum foreldra og forsjáraðila til að ræða við börnin um vináttu, virðingu og samskipti, bæði í daglegu lífi og á netinu, og hafa samband við skólann ef áhyggjur vakna.
Í tilefni dagsins fóru nemendur og starfsfólk út og mynduðu tvo hringi norðan við skólann og sungu saman þrjú vinalög; Gull og perlur, Vinátta og Ég er vinur þinn og tóku allir vel undir.