Enn ein þrusu-skemmtileg vika búin. Margt hefur verið brallað nú sem áður, þrátt fyrir heilmikil flensuhrinu í samfélaginu. Mánudag kom Handbendi á vegum Skúnaskrall með tröllabrúðugerð fyrir yngsta stig, þar var mikið fjör. Miðvikudag var vel heppnað ball fyrir miðstigsnemendur á Blönduósi, var okkar fólk til sóma þar. Fimmtudaginn voru félagsmál hjá unglingastigi. Lögreglan ætlaði að koma í heimsókn á öll stig, en það frestast þar til síðar. Föstudag buðu nemendur í fyrsta bekk á leiksýningu, þau voru búin að gera leikbrúður, hin besta skemmtun
Í dag, föstudag er baráttudagur gegn einelti. Kennarar vinna jafnt og þétt með bekkjum yfir veturinn í verkefnum tengdum baráttu gegn einelti. Misjafnt er milli hópa hvernig sú vinna fer fram t.d á tímabilum, í lotum, í þemaverkefnum eða jafnt og þétt á bekkjarfundum. Þó svo að nú séum við ekki lengur Olweusarskóli, þá eru unnið heilmikið starf innanhúss og kennarar meðvitaðir um mikilvægi þessarar vinnu. Vinna hefur verið hafin við að uppfæra stefnu Varmahlíðarskóla í eineltismálum. Á heimasíðu skólans má finna stefnu Varmahlíðarskóla út frá Olweusi og mun það standa þar til ný stefna verður tilbúin og sett í loftið. Minnum á mikilvægi þess að vera almennileg/ur við náungann - við vitum ekkert í gegnum hvað hann eða hún eru að ganga. Allir þurfa á því að halda að þeim sé sýndur skilningur og tilvera þeirra sé staðfest.
Hjartans kveðjur