Vikupóstur 23. október

Komið öll sæl og blessuð

Vonandi áttu allir náðugt og nærandi haustfrí. Þessi vika gekk hratt yfir og óðar kominn föstudagur. Ýmislegt hefur nú samt verið í gangi hjá okkur þrátt fyrir stutta viku.

Starfsdagur var á mánudag en þá undirbjuggu kennarar samráðsdag, eða/og áframhaldandi námsskipulag. Lagað var til í löngu gleymdum skúmaskotum en vel þekktum og svo áttum við skemmtilega samverustund með starfsfólki leikskólans.

Þriðjudagurinn fór svo í samráð með nemendum og foreldrum. Samtöl gengu mjög vel og mæting góð. Langar okkur að þakka foreldrum sérstaklega fyrir hvað þeir voru röskir að bóka fundi.

9.b. seldi vöfflur eins og vindurinn, það var hlýlegt andrúmsloft í heimilisfræði stofunni og gaman að koma þar inn og sjá foreldra og nemendur í góðri samveru yfir vöfflunum.

Líklegt er að í nóvember fari af stað næsti fasi í fjáröflun fyrir skólaferðalag 8. og 9. bekkjar. Það verður gríðarleg eggjasala sem auglýst verður síðar.

Um þessari mundir eru í heimsókn hjá okkur tveir nemar frá Háskólanum á Akureyri, við eru ótrúlega stolt af fá þau í heimsókn til okkar. Þau fara í heimsóknir í alla hópa og hafa vilja til að sjá sem mest á meðan þau eru hérna.

Páll Óskar kom og söng með okkur í Miðgarði, þar var mikið fjör og allir tóku þátt. Þennan dag var líka stillt upp í bleika slaufu hér fyrir utan og dróni tók mynd af okkur. Nemendur voru í alla staði til fyrirmyndar þennan dag og við vorum ákaflega stolt eftir daginn.

Félagsmál heppnuðust vel í gær, en það var tónlistarbingó, pizzur og diskó. Ánægðir unglingar fóru heim um klukkan 21 og eru því einhverjir þreyttir í dag.

Næsta vika er líka annasöm hjá okkur í Varmahlíðarskóla.

Þriðjudaginn verður tónfundur hjá hluta nemenda Helgu Rósar, tímasetningar fyrir aðra verður auglýst síðar.

Skipuleggjendur Barnamenningarhátíðarinnar Skúnaskrall bjóða upp á áframhaldandi verkefni sem við tökum þátt í.

Á miðvikudag fyrir hádegi fáum við Þórunni Rakel rithöfund í heimsókn en hún ætlar að vera með ritsmiðju fyrir miðstig (5.-7. b.).

Þórunn Rakel Gylfadóttir er fædd í Reykjavík árið 1968 og er uppalin í Hafnarfirði. Fyrsta skáldsaga Þórunnar Rakelar, Akam, ég og Annika sem er ætluð ungmennum, vakti mikla athygli og hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin í flokki barna- og ungmenna bóka.

Eftir hádegi sama dag eða um klukkan 13 kemur Felix Bergsson og les upp úr bók sinni um Leynifélag í Lífsháska og spjallar við nemendur í 4.-7. bekk.

Á fimmtudaginn verður búningardagur og mögulega verður eitthvað hræðilegt að gerast sem nemendur 10. bekkjar skipuleggja, kemur í ljós.

Á föstudaginn er Halloween ball, fyrir elsta stig, á Hofsósi sem þarf að skrá nemendur á í gegnum Abler. Nánari upplýsingar hafa borist í tölvupósti.

Meira síðar

bestu sólarkveðjur