7. bekkur og Kammerkórinn

Á degi íslenskrar tungu bauð Kammerkórinn ásamt nemendum úr 7. b Varmahlíðarskóla upp á dagskrá á Löngumýri. Að þessu sinni var verið að heiðra minningu Halldórs Kiljan Laxnes. Nemendur lásu um Halldór Kiljan og fluttu ljóð. Kammerkórinn söng síðan ljóðin í ýmsum útsetningum undir stjórn Eyþórs Franzsonar. Nemendur stóðu sig virkilega vel og fluttu erindi sín af yfirvegun og af miklum myndarskap.