Árshátíð yngsta og miðstigs fór fram í Menningarhúsinu Miðgarði síðasta vetrardag. Leikritið Abbababb var sett á stokk en það er eftir Gunnar Lárus Hjálmarsson, betur þekktan sem Dr. Gunni.
Nemendur frá 1.- 7. bekk tóku þátt í uppsetningunni og var æfingaferlið afar skemmtilegt þar sem nemendur fengu tækifæri til að semja dansa við lögin, leika hunda og túrista, vera smábarn í bleyju og fá tilfinningu fyrir því hvernig er að vera hrekkjusvín (sem þau mæla ekki með). Nemendur í 1. - 3. bekk hófu leikinn á íþróttafjöri þar sem þau fóru á kostum í allskyns hoppum og stökkum, kollhnísum og fleiru skemmtilegu. Á eftir var svo hafist handa við leikritið Abbababb.
Æfingaferlið byrjaði í febrúar og lögðu nemendur hart að sér í að læra línur, vera með í persónusköpun og leika saman á sviði.
Afraksturinn fór svo fram á síðasta vetrardegi þar sem nemendur stóðu sig frábærlega og var mikið hlegið og klappað í salnum. Einnig erum við ánægð með hversu margir sáu sér fært í að koma og horfa en talið er að um 270 manns hafi verið í salnum. Á eftir var boðið upp á kaffi í Miðgarði þar sem meðal annars var hægt að fá sér djús, skúffuköku og pítsusnúða útbúið af okkar frábæru matráðum í Varmahlíðarskóla.