Akureyrarferð

Í gær, þriðjudaginn 3. mars, fóru nemendur á unglingastigi í Akureyrarferð. Hluti af hópnum tók þátt í dagskrá fyrir þátttakendur Fiðrings í Hofi og á meðan fóru hinir í klifur hjá 600klifur.is.
Fiðringur á Norðurlandi er hæfileikakeppni fyrir nemendur í 8.-10. bekk í anda Skrekks í Reykjavík og Skjálftans á Suðurlandi. Fiðringur er sviðslistahátíð þar sem unglingarnir fá að tjá sig í gegnum sköpun á þann þátt sem þeim hentar best. Þau semja allt sjálf; leikrit, tónlist, dansa ásamt því að sjá um búninga, leikmynd, hljóðmynd og víedeó.
Í hádegismat fengum við dýrindis pítsahlaðborð hjá Greifanum og eftir matinn var farið í heimsókn í Menntaskóla Akureyrar (MA) og Verkmenntaskóla Akureyrar (VMA). Þar fengu nemendur innlit inn í heim framhaldsskólanna og það sem þeir hafa upp á að bjóða. Einnig var farið í heimsókn á heimavistina og fengu nemendur tækifæri til að skoða herbergin og sjá hvernig lífið er á heimavistinni.
Þökkum við kærlega fyrir góðar mótttökur.