Laugardaginn 21. mars er alþjóðadagur Downs - heilkennis og af því tilefni ætlum við að halda upp á daginn á morgun, föstudaginn 20. mars í Varmahlíðarskóla.
Á alþjóðadegi Downs heilkennis göngum við um í ósamstæðum og litskrúðugum sokkum til að draga fram fjölbreytileikann og til að minna á mikilvægi hans í samfélaginu.
Dagsetningin er táknræn, hún vísar til þess að Downs heilkennið er orsakað af auka litning í litningapari 21, það eru þrjú eintök af litning 21 - 21.03.
Við hvetjum því nemendur og starfsfólk til að mæta í ósamstæðum og litskrúðugum sokkum á morgun.