Árshátíð unglingastigs

Nú er árshátíð eldri nemenda afstaðin og hefðbundin stundaskrá í algleymi.  Frumsýning á Ógleymanlegu martröðinni var föstudaginn 16. janúar fyrir troðfullum Miðgarði.  Vegna mikillar eftirspurnar var aukasýning 29. janúar og mættu um 150 manns á þá sýningu. 

Sjaldan hefur eins mikil vinna verið lögð í sýningu í skólanum eins og við Ógleymanlegu martröðina, enda verkið frumsamið af nemendum.  Strax eftir árshátíð 2025 stungu þrír 9. bekkingar upp á því að fá að skrifa sitt eigið handrit fyrir næstu árshátíð. Það voru þær Ólöf Helga, Rakel Sonja og Sigurbjörg Inga. Það var auðsótt mál, en til þess að tryggja sem best að höfundarnir fengju sem mestan stuðning, var lögð inn umsókn hjá Menningarfélagi KS um að fá aðstoð sérfræðings í leikritagerð. Styrkurinn fékkst og leikhúsfrömuðurinn Helgi Grímur Hermannsson leiðsagði stelpunum fram að vori, en þá kom hann norður og hélt dags-vinnustofu með öllum nemendum í 10. bekk. Í þeirri vinnustofu voru hinir nemendur bekkjarins innviklaðir í handritið. Að hausti hélt vinnan í handritsskrifum áfram, m.a. með aðstoð Helga Gríms. Í nóvember var handritið tilbúið til útprentunar og þá þegar voru nemendur búnir að prófa að leika veigamestu senurnar og flestallir komnir með hlutverk. Í kjölfarið hófst hefðbundið æfingferli með tilheyrandi kennslufalli, söng og leik, búningafansi, dansi og drama. 

Á frumsýninguna 16. janúar - og einu auglýstu sýninguna - mættu um 380 manns og seinkaði sýningu um fimm mínútur meðan stöflum af stólum var dreift um salinn til að koma öllum fyrir. 

Margir lögðu lið sitt við að koma sýningunni á koppinn, en þegar hefur verið minnst á Helga Grím og stuðning Menningarfélags KS. Foreldrar og skyldmenni nemenda lánuðu sviðsmuni og allskyns dót, Leikfélag Sauðárkróks lánuðu ómetanlega búninga og nokkrir starfsmenn skólans og foreldrar gáfu sinn tíma í verkið.  Söngtextana sömdu Gunnar á Löngumýri, Ólafur á Grófargili, Íris Olga og Ólöf Helga.