Blár dagur

Markmið bláa dagsins er að vekja athygli á einhverfu og fá landsmenn alla til að sýna einhverfum stuðning sinn. Með aukinni vitund og þekkingu á einhverfu byggjum við upp samfélag sem er betur í stakk búið til að skilja þarfir einhverfra og virða framlag þeirra til samfélagsins.
Þá hvetjum við alla til að klæðast bláu og vekja þannig athygli á málefnum einhverfra barna en blái liturinn hefur fest sig í sessi sem litur einhverfunnar um heim allan.