Dagur íslenskrar tungu

Í gær var dagur íslenskrar tungu. Hann er haldinn hátíðlegur 16. nóvember ár hvert. Dagsetningin var valin vegna þess að þann dag árið 1807 fæddist Jónas Hallgrímsson, skáld og náttúrufræðingur. Dagurinn var fyrst haldinn hátíðlegur árið 1996 og er einnig opinber fánadagur.
Tilgangur dagsins er að vekja athygli á gildi íslenskunnar og hvetja fólk til að rækta hana og nota. Íslenskan geymir sögur, ljóð og orðatiltæki sem hafa gengið milli kynslóða. Hún heldur líka áfram að þróast þegar við búum til orð yfir nýja hluti og finnum nýjar leiðir til að tjá okkur. Jónas tók sjálfur þátt í þeirri þróun með því að yrkja, þýða erlend verk og smíða nýyrði.
Nemendur og starfsfólk komu saman í setustofunni í tilefni dagsins þar sem var hátíðardagskrá. Nemendur í 1. bekk breyttust í kisur og sungu lagið Kisutangó, nemendur í 2. - 3. og 4. bekk sungu saman lagið Draumar geta ræst, nemendur í 6. bekk voru með sannsögulegt grínleikrit um venjulegan dag í lífi 6. bekkinga í Varmahlíðarskóla, nemendur í 7. bekk sungu lagið Skólarapp og Tónakór Tónlistarskólans söng lagið Ísland er land þitt undir stjórn Helgu Rós Indriðadóttur. Á eftir var síðan söngstund þar sem góð íslensk sönglög voru tekin fyrir; Á íslensku má alltaf finna svar, Á Sprengisandi, Öxar við ána og síðast en ekki síst skólasöngurinn okkar.