Vikupóstur 4. september

Komið öll sæl og blessuð

 

Nú þegar haustfundum er lokið, sem tókust án undantekninga afburðavel, halda kennarar áfram að undirbúa og skipuleggja námið. Í septembemánuði vinna kennarar allra bekkja í lesfimi og kortleggja stöðu í sínum hóp.

 

SSNV heimsótti 10. bekk með afar fræðandi erindi um Ungmennaþing sem fyrirhugað er að verði 17. september. Allir nemendur 10. bekkjar fara að þessu sinni á þingið.

 

Skólastarfið í Varmahlíðarskóla verður tekið saman í enda hverrar viku og samantekt eða frétt sett inná varmahlidarskoli.is og facebook síðu skólans. Þar koma fram stærstu atriði vikunnar sem er að líða og atriði sem við viljum minna á fyrir komandi viku.

Ef kennarar þurfa að senda upplýsingar til foreldra sem snúa einungis að þeirra bekk, þá senda þeir tölvupóst.

 

Þetta er tilraunaverkefni og að sjálfsögðu megið þið alltaf hafa samband við mig, varðandi þetta eða hvað sem er.

 

Góða helgi og gangi ykkur vel

 

Sólarkveðjur

Gunna