Vikupóstur 9. október

Komið öll sæl og blessuð

Nokkrar dagsetningar framundan:
9.-12. okt. fundarbókanir á Mentor
14. okt. leikfangadagur í skólanum og LAN+gistinótt hjá Húsi Frítímans (unglingastig)
15.-16. vetrarfrí
19. okt. starfsdagur hjá kennurum - Frístund lokuð
20. okt. samstarfsdagur - Frístund lokuð

Næsta vika er skert vegna þess að framundan er vetrarfrí 15.-16. október. Eftir þá helgi verður einn starfsdagur og þá er frí hjá nemendum.
Þriðjudaginn 20. október verða síðan foreldraviðtöl eða Samráðsdagur eins og við köllum daginn, þá funda foreldrar og börn með umsjónarkennara til að taka höndum saman um velferð og framgang nemandans í lífi og starfi. Nemendur 9. bekkjar safna sér fyrir skólaferðalagi og verða með vöfflusölu í setustofunni, við hvetjum ykkur til að styrkja þau. Bókasafnið verður einnig opið þann dag.
Ég hvet ykkur til að ræða við börnin ykkar um skólann og mæta örlítið undirbúin til leiks. Búið er að opna fyrir fundarbókanir á Mentor og það lokast fyrir bókanir á miðnætti mánudaginn 12 október.
Aðrir kennarar, stuðningshetjurnar okkar og síðast en ekki síst skólaliðar starfa í skólanum þennan dag ef einhver þarf að ræða málin. Skrifstofan er alltaf opin hjá skólastjórnendum, ritara og húsverði.
Miðvikudaginn 21. okt er síðan venjulegur skóladagur samkvæmt stundaskrá.

Græn vika er rétt yfirstaðin þar sem var farið yfir flokkunarmál, matarsóun, náttúruvernd og margt, margt fleira. Skemmtileg verkefni í gangi núna en þetta er vinna sem þarf alltaf að taka fyrir reglulega í einhverri mynd .

Næstu viku tökum við vel á móti kennaranema sem kemur í heimsókn til okkur á unglingastigið. Við erum gríðarlega stolt og ánægð að fá til okkar kennaranema.

Síðastliðna viku fengum við heimsókn frá Háskólanum á Akureyri. Verið var að skoða starf okkar í Varmahlíðarskóla í tengslum við kennsluaðferðina Byrjendalæsi á yngsta stigi og var úttektaraðili gríðarlega ánægð með jákvæðan skólaanda, áhugasama nemendur og skemmtilega nálgun kennara á viðfangsefnum.

Kær kveðja,
Skólastjórnendur.