Margir hafa ánægju af því að semja sögur því að þar er hægt að láta hvað sem er gerast og hvar sem er. Það er hægt að búa til leikrit, semja lag eða koma sögunni á framfæri á annan hátt. Nemendum í 1.-3.bekk hefur gefist kostur á að taka þátt í verkefni sem ber nafnið Sögur og er samstarfsverkefni 7 stofnana.
Árdís Hekla Pétursdóttir var ein þeirra sem tók þátt í verkefninu. Hún fékk verðlaun fyrir sína sögu og má hér sjá mynd af henni og Gunnari Helgasyni rithöfundi og leikara sem er ritstjóri Sagna í ár.