Fiðringur

Valgreinar á unglingastigi eru hugsaðar til þess að nemendur fái tækifæri til þess að kafa dýpra ofan í ákveðin námssvið eða að kynna sér ýmislegt sem er í boði og kanna hvort og hvernig það fellur að áhugasviðinu. Slík könnun getur leitt til stefnubreytingar og því ráðið miklu um framtíðina. Ein af þeim valgreinum sem var í boði á vorönn nefndist Fiðringur. Í nafninu felst spenna og fjör og er það réttnefni því að takmarkið var að taka þátt í lokahátíð í Hofi á Akureyri þar skipulögð hafði verið samkoma að kvöldi dags.

Sara Gísladóttir sá um hópinn og leiddi hann í gegnum misserið. Hóparnir höfðu 6 mínútur til umráða á sviðinu og því skipti miklu að nýta þær vel og fór undirbúningstímabilið í það. Viðfangsefni hópsins var að sýna hvernig lífið hefur breyst frá árinu 20216 til 2026 og mátti þar sjá fjölmargar breytingar. Helsta og sýnilegasta breytingin var sú að sífellt stærri hluti lífins fer fram í stafrænum heimi. 

Atriðin voru fjölbreytileg og þar mátti alls staðar sjá að nemendur höfðu velt fyrir sér lífinu í stóru samhengi og valið atriði sem þeir vildu koma á framfæri við samtímann og samferðafólk sitt.

 

Á hátíðinni voru 9 skólar af Norðurlandi með atriði. Borgarhólsskóli á Húsavík fékk verðlaun fyrir besta atriðið og lið Grunnskóla Húnaþings vestra fékk verðlaun fyrir góða meðferð íslensku í sínu atriði.