Vordagar geta hentað vel til ferðalaga. Nemendur geta búið sig undir slík ferðalög með ólíkum hætti. Ein leið er að fara snemma að sofa vikum saman til þess að búa yfir nægri orku í ferðalag í annan landhluta. Einnig er hægt að stunda líkamsrækt, lesa góðar bækur um áfangastaðinn eða bara að bíða eftir að ferðadagurinn komi og sjá svo til hvað sá dagur ber með sér.
Lagt var af stað að morgni fimmtudagsins 7.maí og lá leiðin til Reykjavíkur. Hápunkturinn var ferð á sýninguna Rauða myllan (Moulin Rouge) sem sýnd hefur verið um nokkurt skeið í Borgarleikhúsinu. Þar gátu nemendur fengið að njóta sýningar sem kallar fram margs konar tilfinningar, rétt eins og lífið sjálft. Að auki voru skoðuð söfn í ferðinni og kannað hvaða aðra afþreyingu mætti finna í höfuðborginni.
Umsjónarkennararnir Helga Rós Sigfúsdóttir og Unnur Erla Sveinbjörnsdóttir skipulögðu ferðina en Helga Þorbjörg Hjálmarsdóttir var þeim til fulltingis.
Hópurinn kom heim að kvöldi föstudagsins 8.maí endurnærður eftir uppbyggilega ævintýraferð.