Fiskaverkefni

Nemendur 4.-5. bekkjar fengu skemmtilega sendingu frá einu foreldri sem vinnur á togara: hinar ýmsu tegundir sjávarlífvera sem slæðst höfðu í net. Þær voru síðan nýttar til náms í skólanum.

Það var mikil eftirvænting á föstudagsmorgni þegar skólinn ilmaði af sjávarafurðum (fæstum til mikillar ánægju) og nemendum bauðst að skoða 11 tegundir sem fengnar voru frá föður nemanda sem vinnur á togara. Þetta tengdist þemavinnu nemenda um hafið sem nemendur í 1.-5. bekk hafa verið að vinna með síðustu misseri.

Við fengum í hendurnar tindabykkju, steinbít, hlýra, grásleppu, lúðu, þorsk, ýsu, karfa, blágómu, krossfiskar og eitt pétursskip. Nemendur þurftu að greina tegundirnar með hjálp fræðibóka. Lyktina lagði yfir skólann svo það var varla hægt að láta þetta fara fram hjá sér. Allir nemendur skólans komu við og fengu að líta herlegheitin augum. Starfsfólk tók sér einnig tíma úr degi til og leit við. Fullorðna fólkið var spennt fyrir pétursskipinu sem fæstir höfðu séð en nemendum fannst vitanlega blágóman vígalegust vegna stærðar hennar. Í lok dags voru tveir fiskar krufnir og mátti nema að hér væru sveitakrakkar á ferð miðað við áhuga, spennu og almenna jákvæðni þegar fiskarnir voru slægðir - greinilega ýmsu vön.

Virkilega gott að eiga góða að en umsjónarkennari telur að þetta verði ein af þessum stundum sem þessir nemendur eiga eftir að muna vel eftir í lok sinnar grunnskólagöngu.