Dagur sjaldgæfra sjúkdóma og heilkenna er föstudagurinn 27. febrúar næstkomandi.
Þann dag ætlum við að ,,glitra í Varmahlíðarskóla" í tengslum við dag einstakra barna.
Félag einstakra barna hvetur öll fyrirtæki og starfstaði landsins til að sýna stuðning og samstöðu við þá sem lifa með sjaldgæfa sjúkdóma eða heilkenni með því að ,,glitra með okkur".
Glitraðu með okkur með því að klæðast einhverju glitrandi eins og glimmeri og/eða pallíettum. Allt sem er litrikt og glitrandi er skemmtilegt og minnir okkur á að börn eru allskonar.
Sjáumst ,,glitrandi" á föstudaginn.