Háskólalestin

Nemendur í 8. - 10. bekk fóru í skemmtilega og fræðandi heimsókn þegar Háskólalestin frá Háskóla Íslands var í Árskóla dagana 16.–18. apríl. Háskólalestin er metnaðarfullt verkefni frá Háskóla Íslands þar sem markmiðið er að efla áhuga nemenda á vísindum, fræðum og háskólanámi með lifandi og fjölbreyttri kennslu.
Háskólalestin býður upp á kennarasmiðjur og fjölbreytt námskeið fyrir nemendur á unglingastigi Árskóla, Varmahlíðarskóla og Grunnskólans austan Vatna. Nemendur fá tækifæri til að kynnast ólíkum fræðasviðum með virkri þátttöku og skemmtilegum verkefnum. Námskeið sem nemendur geta valið úr eru:

Blaða- og fréttamennska
Tilraunastofa í eðlisfræði
Vísindi bleikjunnar - slepjulegt og saltað
Hugrekki í hegðun
Íþrótta- og heilsufræði
Japönsk fræði
Skurðlækingar
Sjúkraþjálfun
Stjörnufræði
Skapandi tæknismiðja
Fallbyssu skotkeppni

Nánari upplýsingar um verkefnið má finna á heimasíðu Háskólalestarinnar:
https://haskolalestin.hi.is/is