Á vordögum er hefð fyrir því að nemendur í 7. bekk eigi notalega stund með eldri borgurum á Löngumýri. Það er alltaf jafn gaman að sjá yngri og eldri kynslóðir tengjast með þessum hætti en börnin lesa upp valin ljóð, spila, spjalla og fá að lokum dýrindis veislu í boði eldri borgara. Börnin stóðu sig með miklum sóma og var hrósað margoft fyrir upplesturinn.