Hestadagar á Hólum

Nú í vikunni hafa nemendur í 9. bekk farið á þriggja daga hestanámskeið hjá Hestafræðideildarinnar á Hólum. Nokkurra ára hefð er orðin fyrir  þessu samstarfi og hafa margir nemendur fengið tækifæri til að kynnast hestamennsku í fyrsta sinn.  Nemendur fá bæði bóklega og verklega tilsögn og má búast við að flestir hafi eitthvað gagn af þessu og allir þó nokkuð gaman.