Síðastliðna daga höfum við verið í mikilli hreyfingu, bæði starfsfólk og nemendur. Á miðvikudag vorum við með hreyfistöðvar. Það var farið í leiki á Hátúnsvelli, þrautir á íþróttavellinum, bandý í íþróttahúsinu og skemmtilegt fjör á stéttinni framan við skólann. Á fimmtudaginn fórum við út á Sauðárkrók þar sem farið var í körfubolta, fótbolta, sund, heimsóttum skólalóðina í Árskóla og borðuðum upp í Litla - Skógi. Í dag, föstudag, var svo hreyfingadagurinn mikli þar sem við fórum labbandi frá Varmahlíðarskóla, upp Reykjarhólinn og inn á reiðveginn og fylgdum honum svo í Víðimýri þar sem við fengum leiðsögn um kirkjuna. Eftir kirkjuferð grilluðum við pylsur og fórum að vaða í ánni. Margir voru með háfa með sér og var mikið kapp í nemendum að finna fiska. Dásamlegir dagar eins og myndirnar sem fylgja þessari frétt sýna. Í næstu viku fara svo venjulegir skóladagar í gang.