Jólatré og jólaljós

Nemendur 4. bekkjar fóru í árlega vettvangsferð í síðustu viku til að fella og sækja jólatré. Þessi hefð er afar notaleg og ævintýri í hvert sinn. Búið var að undirbúa leiðangurinn en svo fór að tréð sem átti upphaflega að sækja fannst ekki aftur, snjókoma næturinnar hafði breytt ásýnd skógarins og þrátt fyrir talsverða leit fannst það ekki. Því þurfti að leita að öðru tré og vakti þetta ansi mikla kátínu. Þegar tréð var fundið hófust nemendur handa við að saga og fella tréð. Vaskir og kraftmiklir krakkar voru nú ekki lengi að því. Þau voru heldur ekki lengi að taka tréð á milli sín og tölta saman syngjandi kát með fenginn niður á skólalóð. 

Það er orðin hefð, við upphaf aðventu, að allir nemendur og starfsfólk skólans fari út, telji niður og formenn nemendaráðs tendra jólaljósin á trénu við skólann. Á sömu stundu er kveikt á ártali og stjörnu í Reykjarhólnum. Ljósin voru tendruð á föstudaginn var. Allir komu saman úti, dönsuðu dátt og sungu jólasöngva við undirleik Stefáns R. Gíslasonar sem lék á harmonikku. Nemendur fengu síðan jólalegan morgunverð, heitt súkkulaði, ostabrauð, mandarínur og piparkökur.  

Við hvetjum alla til að staldra við um stund í amstrinu, gleðjast með sínum nánustu og leggja rækt við kærleika. Njótið aðventunnar!