Jólatré við skólann

Það er orðin árleg hefð hjá okkur að vera með jólatré fyrir framan skólann og að nemendur í 4. bekk sæki það. Það var einmitt tilefnið núna í ár. Nemendur örkuðu af stað með umsjónarkennurum og húsverði, fundu gott tré, söguðu það niður og báru það heim í skólann. Næstkomandi fimmtudag verður svo kveikt á jólatrénu að viðstöddum öllum nemendum og starfsfólki skólans.