Í vikunni fóru fram framboðsfundir og kosning í nemendaráð Varmahlíðarskóla fyrir núverandi skólaár. Á framboðsræðum mátti sjá að nemendur voru vel undirbúnir, ræðurnar málefnalegar og framkoma til fyrirmyndar. Niðurstaða kosninga er svohljóðandi: Jón Karl Brynjarsson og Bergrún Lauga Þórarinsdóttir úr 10.bekk eru formenn og Ingibjörg Agnarsdóttir aðalmaður og Edda Björg Einarsdóttir varamenn, Hrólfur Leví Traustason aðalmaður og Ásrún Fjóla Stefánsdóttir varamaður í 9.bekk, Emma Mjöll Jóhannesdóttir aðalmaður og Alina Leblanc Gurung í 8.bekk, María Sjöfn Jónsdóttir aðalmaður og Ólafur Árni Stefánsson varamaður í 6. bekk. Frábært að fá svona góðar fyrirmyndir sem hafa það aðalmarkmið að vinna í þágu nemenda varðandi félagsstarf skólans.
Til hamingju og gangi ykkur vel.