Í Varmahlíðarskóla starfa hin ýmsu teymi og þar á meðal Læsisteymi. Teymið hefur það að leiðarljósi að efla læsi og lestur innan skólans. Halda utan um lestrarátök, vera í góðu samstarfi við bókasafnið og vera leiðandi í að halda mikilvægi lestrar og læsis á lofti. Meðal verkefna sem Læsisteymið er með eru lestrargestir. Það er heldra fólk úr nærsamfélaginu sem hefur áhuga á að koma inn í skólann og hlusta á lestur eða lesa fyrir nemendur.
Lestur og læsi eru mikilvæg í námi og daglegu lífi. Með lestri kynnast börn nýjum orðum og ólíkum sjónarhornum. Þegar þau ræða það sem þau lesa eða hlusta á fá þau tækifæri til að velta fyrir sér merkingu orða, tengja efnið við eigin reynslu og segja frá því með eigin orðum. Þannig efla þau orðaforða sinn og lesskilning, sem nýtist í öllum námsgreinum, hvort sem þau lesa stærðfræðidæmi, fylgja leiðbeiningum eða finna aðalatriðin í fræðitexta. Læsi eykur líka sjálfstæði í daglegu lífi, til dæmis þegar við þurfum að skilja skilaboð, bera saman upplýsingar og meta hvort við getum treyst því sem við lesum. Sameiginlegar lestrarstundir geta jafnframt verið ánægjulegar og kveikt góð samtöl. Þegar nemendur lesa fyrir heldri borgara fá þeir að æfa sig í að lesa upphátt fyrir áheyranda. Þegar gestirnir lesa fyrir nemendur geta allir tekið þátt í sögunni, spáð fyrir um framhaldið og rætt hvers vegna persónurnar bregðast við eins og þær gera.
Í vikunni komu Gísli Rúnar Konráðsson, Sara Valdimarsdóttir og Gunnar Rögnvaldsson til okkar sem lestrargestir. Fleiri gestir koma á næstu vikum. Við viljum endilega biðja fólk sem hefur áhuga á að taka þátt í þessu verkefni að hafa samband við skólann. Frábært verkefni sem leiðir kynslóðir saman í lestri.
Í læsisteyminu eru Birgitta Sveinsdóttir, Helga Sigurðardóttir, Sara Gísladóttir og Sigrún Gylfadóttir.