Daginn fyrir haustfrí var leikfangadagur í skólanum. Þann dag mættu nemendur með sín uppáhaldsleikföng og kenndi ýmissa grasa í því. Það var komið með dúkkur, kaffihús, fjarstýrða bíla og meira að segja fjarstýrðan dróna sem vakti mikla lukku. Nemendur fengu svo að leika ´sér með leikföngin og skapaðist góð stemmning þá.