Á morgun, fimmtudaginn 19. mars, er mottumarsdagurinn. Við hvetjum nemendur og starfsfólk til að mæta með mottu í tilefni dagsins og/eða í mottumarssokkunum vinsælu. Krabbameinsfélagið hvetur líka alla landsmenn, konur og karla, til að taka þátt í deginum og gera sér glaðan dag með fjölskyldunni, vinum og vinnufélögum og vekja þannig athygli á baráttunni gegn krabbameinum hjá körlum. Svo allir karlar sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendur þeirra finni stuðning okkar og samstöðu.