Það er búið að vera mikið að gera hjá nemendum í 10. bekk þessa vikuna. Það hafa verið starfskynningar þar sem nemendur fóru í heimsóknir á vinnustaði og fengu tækifæri til að sjá starfsemi þar en það var til dæmis farið á lögreglustöð, Sýn Sport, bakarí, ísbúð og margt fleira.
Fimmtudaginn 26. febrúar fóru nemendur í heimsókn til FNV og fengu þar kynningu um skólann, hittu nemendur og sáu leikritið Stella í orlofi sem nemendur FNV eru að sýna þessa dagana.