Miðvikudaginn 21. október heimsækir Páll Óskar Varmahlíðarskóla. Við ætlum að syngja saman í Miðgarði kl. 13:00-14:00. Meðal annars ætlum við að sygngja lagið Eitt af blómunum en innihald textans tengist Baráttudegi gegn einelti. Heimsókn Páls Óskars er liður í Skúnaskralli barnamenningarhátíðar SSNV. Nemendur og starfsfólk skólans eru búin að æfa lagið og er mikil tilhlökkun að syngja með poppgoðinu. Sama dag er bleikur dagur í skólanum og við ætlum að bæta við smá glimmeri.
Tjúllað stuð!