Reiðhjólahjálmar afhentir 1. bekk

Í dag fengu krakkarnir í 1. bekk góða gjöf. Það voru reiðhjólahjálmar frá Kiwanisklúbbnum Drangey. Að þessu sinni voru hjálmarnir afhentir hér við skólann. Það var Steini á Mel sem afhenti hjálmana fyrir hönd klúbbsins með ósk um allt það besta og velferð í umferðinni.