Risastórar smásögur

Á síðasta skólaári tók Árdís Hekla Pétursdóttir, þá nemandi í 3. bekk, þátt í smásagnakeppninni Sögur. Hún sendi inn smásöguna Nefhildi og var ein þeirra höfunda sem valdir voru úr stórum hópi þátttakenda til að vinna áfram með sögu sína. Alls voru 17 smásögur valdar.

Núna í haust kom bókin Risastórar smásögur út en í henni eru allar sögurnar 17, myndskreyttar af höfundunum sjálfum. Bókin er til á bókasafninu og þar geta allir komið og lesið söguna um Nefhildi.

Innilega til hamingju með þennan glæsilega árangur, Árdís Hekla!