Skóladagatal næsta skólaárs

Skólaárinu 2020-2021 er nú senn að ljúka. Nemendur komnir í sumarleyfi og starfsfólk vinnur þessa daga að frágangi og undirbúningi. Skólaráð og fræðsluyfirvöld hafa samþykkt skóladagatal næsta skólárs. Skólastarf nemenda hefst 26. ágúst næstkomandi. Frístund starfar frá 18. ágúst fyrir skráð börn.

Samráðsdagar verða 12. október og 16. febrúar, starfsdagar eru 11. október, 13. október og 15. febrúar. Haustfrí 14.-15. október. Litlu jólin eru á föstudeginum 17. desember og á nýju ári, árið 2022 hefst skólastarf á mánudegi 3. janúar. Vetrarfrí verður 17.-18. og 21. febrúar. 

Við hvetjum fólk til að kynna sér dagatalið og skipuleggja sig í samræmi við það.

Skóladagatal Varmahlíðarskóla 2021-2022